All language subtitles for Kona ferd i strid

af Afrikaans
ak Akan
sq Albanian
am Amharic
ar Arabic
hy Armenian
az Azerbaijani
eu Basque
be Belarusian
bem Bemba
bn Bengali
bh Bihari
bs Bosnian
br Breton
bg Bulgarian
km Cambodian
ca Catalan
ceb Cebuano
chr Cherokee
ny Chichewa
zh-CN Chinese (Simplified)
zh-TW Chinese (Traditional)
co Corsican
hr Croatian
cs Czech
da Danish
en English Download
eo Esperanto
et Estonian
ee Ewe
fo Faroese
tl Filipino
fi Finnish
fr French
fy Frisian
gaa Ga
gl Galician
ka Georgian
de German
el Greek
gn Guarani
gu Gujarati
ht Haitian Creole
ha Hausa
haw Hawaiian
iw Hebrew
hi Hindi
hmn Hmong
hu Hungarian
is Icelandic
ig Igbo
id Indonesian
ia Interlingua
ga Irish
it Italian
ja Japanese
jw Javanese
kn Kannada
kk Kazakh
rw Kinyarwanda
rn Kirundi
kg Kongo
ko Korean
kri Krio (Sierra Leone)
ku Kurdish
ckb Kurdish (Soranî)
ky Kyrgyz
lo Laothian
la Latin
lv Latvian
ln Lingala
lt Lithuanian
loz Lozi
lg Luganda
ach Luo
lb Luxembourgish
mk Macedonian
mg Malagasy
ms Malay
ml Malayalam
mt Maltese
mi Maori
mr Marathi
mfe Mauritian Creole
mo Moldavian
mn Mongolian
my Myanmar (Burmese)
sr-ME Montenegrin
ne Nepali
pcm Nigerian Pidgin
nso Northern Sotho
no Norwegian
nn Norwegian (Nynorsk)
oc Occitan
or Oriya
om Oromo
ps Pashto
fa Persian
pl Polish
pt-BR Portuguese (Brazil)
pt Portuguese (Portugal)
pa Punjabi
qu Quechua
ro Romanian Download
rm Romansh
nyn Runyakitara
ru Russian
sm Samoan
gd Scots Gaelic
sr Serbian
sh Serbo-Croatian
st Sesotho
tn Setswana
crs Seychellois Creole
sn Shona
sd Sindhi
si Sinhalese
sk Slovak
sl Slovenian
so Somali
es Spanish Download
es-419 Spanish (Latin American)
su Sundanese
sw Swahili
sv Swedish
tg Tajik
ta Tamil
tt Tatar
te Telugu
th Thai
ti Tigrinya
to Tonga
lua Tshiluba
tum Tumbuka
tr Turkish
tk Turkmen
tw Twi
ug Uighur
uk Ukrainian
ur Urdu
uz Uzbek
vi Vietnamese
cy Welsh
wo Wolof
xh Xhosa
yi Yiddish
yo Yoruba
zu Zulu

Original subtitles

Eftir plani! Eftir plani!

Góðan daginn.

Svona, svona.

Kona!

Ef þú getur hugsað þér að hjálpa mér

þá verður það að gerast núna.

Þeir eru að leita að mér.

Og hvað hefur þú gert af þér? -Ég sló út háspennulínurnar.

Svo það ert þá þú? -Já.

Þetta er þá í fimmta skipti.

Og hvað ert þú ein að verki? -Já.

Og þú vilt gera mig meðsekan í vandalisma?

Ég er ekki glæpamaður, ég er að reyna að stöðva glæpi

og skemmdarverk gegn okkur öllum.

Og hverra manna ert þú?

Ég heiti Halla,

dóttir Benedikts Sigurðssonar.

Amma mín er héðan úr Grímstungunni.

Já, svo þú ert af Eyvíkur kyninu.

Já, já, ég þekki þitt fólk.

Og þú ert dóttir hans Bensa, já.

Það sem ég hef gert trúi ég af öllu hjarta að sé rétt.

Kona!

Kyrr! Gelta!

Kona! Gelta!

Þeir sáu slóðina frá heiðinni og hingað niður eftir.

Nú sækja þeir sporhunda.

Svo þér er ekki boðið til langvistar hér.

Ég má ekki missa jeppann.

En ég get lánað þér þennan.

Þú skilar honum svo bara þegar þú getur.

Fyrir næstu þjóðhátíð væri fínt.

Þú þarft að fá tilfinningu fyrir kúplingunni.

Ef þeir ná mér segist ég hafa stolið honum, ókei?

Þú hefur það bara alveg eins og þú vilt.

Þakka þér fyrir hjálpina.

Við höfum ekki hátt um það hér í sveitinni.

En líklega var hann afi minn ekki rétt feðraður.

En því var fleygt um hann langafa þinn,

hann Sigurð í Eyvík, sem var öfgamaður um margt

eins og flest hans fólk

Og átti það til að hlaupa í skarðið

fyrir ýmsa hér í sveitinni.

Þess vegna gætum við verið þremenningar.

Ja, hérna. Þá segi ég bara takk fyrir, frændi.

Ja, meintur frændi.

Við skulum sjá hvort að þetta verður þér til einhverrar hjálpar.

Kona!

Stillt.

Íslensk stjórnvöld hafa loks viðurkennt

að hin ítrekuðu straumföll sem hafa orðið hér í álverinu

séu vegna skipulagðra skemmdarverka.

Enginn hefur þó enn lýst ábyrgð á hendur sér.

Þorbjörn Gíslason, vaktstjóri hjá álverinu.

Þetta gekk betur núna en um daginn, Þorbjörn?

Já, en það er gríðarlega dýrt að keyra þetta allt á olíu

en líklega betra en allt storkni

og eyðileggist í kerjunum eins og síðast

sem er gríðarlegur skaði.

Samkvæmt heimildum fréttastofu

hefur einn maður verið handtekinn hér í dag

rétt eftir straumfallið,

Um er að ræða erlendan karlmann á þrítugsaldri

sem færður var...

Fyrirgefiði elskurnar, ég er of sein.

Ég er sek.

Eruð þið búin að hita upp?

Æðislegt, eigum við ekki bara að skella okkur í létta vorvísu

til að hita upp sálina.

Hve bjart er veður og blómið glatt

er morgundöggin seður.

Hver bjart er veður og blómið glatt

er morgundöggin seður.

Ó, græna lífsins land ó, lífsins græna land.

Ó, lands míns gróður.

Leyf mér að elska þig og vera góður.

Ókei, strákar.

Landsins gróður og land míns bróður.

Þetta er munur, læra það, það er alveg á hreinu.

Smá breyting, ég þarf að ljósrita þannig að hérna...

Baldvin, getur þú aðstoðað mig,

þú ert svo flinkur með pappíra og græjur og svona...

Alltaf er það Baldvinurinn...

Það er þá ekki ónýtt

að vera með ráðuneytismann í pappírsmálunum.

Hvað var þyrlan að gera þarna? Þú sagðir...

Þeir höfðu flutt hana á Laugarvatn

út af einhverju slysi. Ég vissi það ekki.

Já, þetta var alltof tæpt. -Já, ég veit það, sko.

Þú verður að stoppa núna!

Þeir eru að biðja Ameríkanana að vakta hálendið

ofan úr geimnum,

Það er búið að panta gervitungl,

það er verið að setja hitamyndavélar í allar þyrlur,

línurnar verða vaktaðar.

Hvað er langt í gervitunglið? -Ég veit það ekki.

Vika, kannski minna.

Getur það séð í gegnum ský?

Sko, þú getur ekki tekið sénsinn á því.

Halla, þú ert búin að ná þínu fram,

Kínverjarnir eru hættir við.

Kínverjarnir eru bara búnir að fresta,

þeir eru ekki farnir, þeir eru hérna ennþá.

Það er bara diplómasía.

Þeir telja landið óöruggt, þessir samningar verða ekkert.

Þetta snýst ekki bara um þessa Kínverja og Ísland.

Þeir eru margoft búnir að tala um þetta.

Rio Tinto er að hóta að fara í mál við Landsvirkjun

upp á fleiri, fleiri milljarða!

Þú þarft ekkert að gera neitt meira.

Þetta er í öllum fjölmiðlum,

það eru allir gjörsamlega að fara á taugum.

En þú? -En ég hvað?

Ertu að taka lyfin þín?

Já eða ég nei, eða ég er að trappa mig niður í 25 mg.

Það gengur bara fínt.

Hlustaðu á mig, þú skilur ekki alveg hvað er að gerast,

þú verður...

Þeir eru komnir með rafstöðvar.

Næst verð ég að fella möstur svo það verði alvöru tjón,

annars taka þeir ekki mark.

Við verðum að klára planið.

Nei, sko, núna, ertu með athygli heimsins.

Núna verðurðu að senda frá þér yfirlýsinguna.

Og svo, hættirðu.

Ef þeir ná þér núna þá þagga þeir allt niður.

Þeir jarða þig.

Ókei. -Ókei.

Ég hugsa málið.

Hugsa málið? Það er ekkert að hugsa.

Ég þekki þetta lið,

ég er umkringdur þessum sýkópötum alla daga.

Ég veit hvernig þeir hugsa. Ekki vanmeta þá.

Er hún nettengd?

Nei, ég er búin að athuga hana.

Baldvin, Baldvin. Hún er örugg.

Halló, ég veit hvað ég er að gera.

Þú getur ekki verið örugg með neitt. -Uss.

Eruð þið tilbúin? -Já.

Og fletta.

Flottur bíll.

Já.

Veistu hver á hann? -Nei, ekki hugmynd.

Halló?

Þetta eru glæpaverk og þessari skipulögðu glæpastarfsemi

gegn íslenska ríkinu og íslensku þjóðinni

verður mætt af fullri hörku.

En ég ítreka að aðeins verður gert tímabundið hlé

á viðræðum við kínversku sendinefndina.

Ríkisstjórnin er einhuga

í áframhaldandi uppbyggingu iðnaðar á Íslandi.

Yfirlýsing íslenskra stjórnvalda

hefur vakið mikla athygli erlendra fjölmiðla.

Í þýskum fjölmiðlum var talað um hina grænu herdeild Íslands

Og BBC fjallar...

Skandall að ríkisstjórnin hafi ekki viðurkennt fyrr

að hér er um skemmdarverk að ræða.

Þetta er bara árás á allan iðnað á Íslandi og iðnaðaruppbyggingu

og enginn að fara að fjárfesta í orkufrekum iðnaði

hér á næstu árum.

Halló?

Jú, það er hún...

Já, sæl.

Bréf? Nei, ég hef ekki fengið neitt bréf.

Jú, ég var með umsókn en það eru fjögur ár síðan.

Já, ég skal bara athuga póstinn minn.

Látum okkur sjá, bíddu, ég ætla að athuga annan stað.

Guð minn góður.

Stúlka.

Jú ég með þetta hérna, já, hérna, og...

Já, ég þarf nú að skrifa hjá mér.

Nei, bíddu í fyrramálið?

Já, ég get nú alveg munað það, klukkan hvað, ellefu?

Og hérna, hvað er hún gömul?

Jú, það já, fjögurra, það er hérna, já.

Ókei.

Já, takk fyrir, sjáumst.

Já, ég þarf að skoða þetta. Ég hérna...

Það eru náttúrulega fjögur ár

síðan ég tók þetta alveg af dagskrá.

Þú hefur því miður ekki mikinn tíma

til að velta þessu fyrir þér.

Við þurfum að fá afgerandi svar á næstunni.

Ef þú ætlar ekki að taka við barninu

þá þurfum við að finna aðra aðila.

Já, ég skil það.

Það hefur bara svo margt breyst.

Hér er alla vega mappan með öllum upplýsingum

frá úkraínska heimilinu og svo ég fari yfir þetta.

Ef af verður þá þarftu að leggja fram nýtt sakavottorð

og nýtt læknisvottorð

og yfirlýsingu um að þú sért ennþá einhleyp,

ef það er ennþá þannig?

Já, ég er það.

Þá þarftu nýja undirskrift stuðnings- og varaforsjáraðila

við fyrsta tækifæri.

Eyðublaðið er hérna efst.

Það verður væntanlega áfram systir þín? -Já.

Og þú verður þá líklega hennar stuðningsforeldri

ef af verður hjá henni?

Ha? -Hún er líka með umsókn inni.

Þið sóttuð um á sama tíma, ef ég man rétt.

Jú, jú, það hefur ekkert breyst,

en ég náttúrulega veit ekki, eða get ekki svarað fyrir hana.

Ég skil.

Flott. Gjörðu svo vel.

Það er ljósmynd af stúlkunni

og aðrar ítar upplýsingar þarna.

Hún er frá Donetsk svæðinu frá borg sem heitir Drutzh Kivka.

Hún missti báða froeldra sína í stríðinu.

Fannst hjá ömmu sinni sem hafði þá verið látin í einhverja daga.

Svo það er þarna áfall sem þarf að vinna úr.

En hún er greinilega lítil hetja.

Mjög gott.

Og við leggjumst á bakið.

Og við gefum eftir allan þunga líkamans til móður jarðar.

Ég þarf að tala við þig. -Já, ég líka, eftir smá.

Við slökum á, öndum inn ljósinu,

öndum frá.

Treysta.

Ég bíð úti í garði. -Eftir fimm mínútur.

Má ég fyrst? -Já.

Þeir breyttu regluunum, þeir breyttu reglunum

og það bíður mín lítil stelpa í Úkraínu.

Við erum ekki of gamlar í Úkraínu. Ekki lengur.

En frábært!

Veistu það, ég bara, ég vissi að það var eitthvað.

Mig er búið að dreyma þig svo ofboðslega mikið undanfarið,

Eins og eitthvað svona mikið

og stórkostlegt væri að fara að gerast

og nú er það búið að gerast.

Elsku Halla, þú ert að verða mamma.

Og nú þú líka, ég meina við sóttum um á sama tíma

svo þú hlýtur að vera næst í röðinni.

Ég er líka með dálítið stórt að segja þér líka.

Ég hef fengið inngöngu í Maharami Ashramið á Indlandi.

Ha, hjá gúrúnum? -Já.

Ég mun njóta handleiðslu Tony Naders

og ég verð í burtu í tvö ár

í algjörri einangrun frá umheiminum.

Ertu að ganga í klaustur? -Það má segja það.

En við, ég meina þú ert varaforsjárforeldrið mitt

svona stuðnings ef að...

Ég get verið frænkan í útlöndum þangað til ég kem heim.

Hvað heitir hún?

Ertu með mynd?

Hún er með blóm. Hún er alveg eins og þú.

Og þú...

Hún er alveg eins og við.

Hún heitir Nika. -Nika.

Og hún er alein í heiminum

Missti allt í þessu stríði þarna, mömmu, pabba og ömmu.

Nika Hölludóttir.

Það er bara allt eitthvað svo flókið núna.

Hvað meinarðu? Hvað er svona flókið?

Hvað er að, segðu mér?

Ég held ég þurfi hjálp.

Við þurfum öll að finna okkar leið.

Mitt ferðalag er innra ferðalag til móts við sjálfa mig.

Þitt ferðalag er til Úkraínu til þessarar litlu stelpu.

Viltu samt skrifa aftur undir? -Hvað?

Að þú verðir varaforsjárforeldrið mitt,

bara á pappírum.

Auðvitað skrifa ég undir, en þú þarft engan annan,

þú veist það, þú getur þetta.

Nú ert þú mamman og þú lætur ekkert stoppa þig.

Hvað sagði mamma alltaf?

Já, segðu það.

Mömmur geta allt.

Nei, hitt.

Finna lausnir. -Einmitt

Ertu að leita að einhverju sérstöku?

Nei, ekkert sérstakt í dag.

Bara velkomin eins og alltaf.

Sjáumst.

Heyrðu, ég þarf að rjúka, við sjáumst bara seinna.

Alltaf velkomin, elskan.

Ég lýsi því yfir að ég ber ein ábyrgð á skemmdarverkum

sem unnin hafa verið á háspennulínum landsins.

Það skal því verða heiminum kunnugt

að stóriðja á Íslandi verður dýrkeypt þeim...

Ég lýsi því yfir að ég ber ábyrgð á...

Aðgerðir mínar beinast eingöngu gegn...

Ókei.

Skemmdarverk eru í raun glæpur gegn mannkyninu.

Flott.

Drifkraftur þessarar helstefnu sem ekki einu sinni lýðræðis...

Nei, kommon.

Ég skora á alla sem orð mín ná til að rísa upp

og nota hugvit sitt og þrótt

til þess að valda þessum fyrirtækjum sem mestu tjóni.

Það er það eina sem þetta siðblinda fyrirbæri,

hið alþjóðlega stórfyrirtæki, skilur.

Þannig vinna þau sjálf um allan heim með hótunum

og hefndarverkum gagnvart náttúru og mannfélögum.

Er þetta búið? -Nei, það er...

Ég náði signali! Þetta er komið inn á visir.is.

Kláraðu þetta.

Þau skemmdarverk á umhverfi okkar

sem valda hlýnun andrúmslofts og súrnun sjávar

eru í raun glæpur gegn mannkyninu

og öllu lífi á jörðinni.

Hagkerfi hinna alþjóðlegu stórfyrirtækja

er driftkraftur þessarar helstefnu

sem ekki einu sinni lýðræðið sjálft getur stöðvað

eins og löngu er orðið ljóst.

Þetta er ótrúlegt...

En til eru lög, lög sem ekki voru...

Nei, þú ert að stökkva yfir.

Til eru lög sem eru æðri manna lögum,

lög sem ekki voru sett í gær né verða felld á morgun.

Það er hinn óskoraði neyðarréttur okkar

til að verja líf, heilsu og heill komandi kynslóða.

Við sem nú lifum erum stærsta og öflugasta kynslóðin

sem uppi hefur verið.

Við erum líka síðasta kynslóðin sem getur brugðist við

og stöðvað hernaðinn gegn móður jörð.

Börn okkar og barnabörn geta engu breytt

fyrir þau verður það orðið of seint.

Nú er stundin, okkar er verkið.

Fjallkonan.

Við getum jarðað þetta.

Hvernig? -Sko, aðalatriðið...

Ég þarf að gera játningu.

Þannig er að ég bý yfir leyndarmáli

sem ég get ekki lengur þagað yfir.

Eins og þið vitið þá hef ég...

Ég hef lengi átt mér draum

en tíminn leið og ég hélt að þessi draumur myndi ekki rætast

þangað til í fyrradag.

Þannig er að það er lítil stúka í Úkraínu sem þarfnast móður

og mamman, það er víst ég.

Til hamingju.

Hún heitir Nika.

Vá, hvað hún er falleg.

Hún er fjögurra ára.

Til hamingju, Halla.

Hvenær kemur hún?

Já, ég fer að sækja hana í næstu viku

Þannig að við þurfum að fresta sumartónleikunum.

Hún er að verða mamma. Hún er að verða mamma.

Hvaða túristi er þetta?

Þetta er ekkert grín, sko.

Það er kominn Ameríkani til að taka yfir rannsóknina

og þeir eru að tala um einhverja Ísraela líka.

Það er verið að láta greina pappírinn.

Og af hverju í andskotanum notaðirðu gamla ritvél?

Það er hægt að rekja svoleiðis. -Láttu ekki svona.

Það er ekki hægt að rekja þetta. Engar áhyggjur.

Af hverju léstu mig ekki lesa þetta yfir

eins og við töluðum um?

Ég þurfti að koma þessu frá mér, tímasetningin var mjög mikilvæg

og eftir að stúlkan kom inn í myndina.

Það eru bara í þessu mjög veikir punktar

sem þeir eiga eftir að rífa í sig.

Eins og hvað?

Eins og þetta með lög ofar lögum.

Þú ert að opna á mjög hættulegan vinkil

sem þeir eiga eftir að hamra á.

Þeir eiga eftir að spinna þetta til andskotans.

Fólk sér í gegnum svona lagað.

Nú er ég búin að sá fræjunum

og það er ekkert hægt að kæfa umræðuna.

Þeir ætla sér ekkert að kæfa hana,

þeir ætla sér að stjórna henni, stjórna því um hvað er talað.

Um hvað verður talað?

Það verður bara talað um aðalatriði málsins.

Já og hver segir okkur hver eru aðalatriði málsins?

Það er komin af stað lekarannsókn.

Og það er búið að kötta ráðuneytið út úr lúppunni.

Liggur þú undir grun?

Ég veit það ekki. Það liggja allir undir grun.

Ég get þetta ekki lengur, ég bara get þetta ekki lengur.

Ef þeir skoða mig þá munu þeir skoða þig.

Ókei, ókei, kæri vinur.

Við erum of tengd. -Við hættum alveg núna.

Ég lofa. -Þú verður að fara.

Bara farðu.

Það er ljóst að það er kjaraskerðing framundan

vegna aðgerða þessarar konu, þessarar fjallkonu.

Þetta er ekkert annað en aðför að kjörum vinnandi fólks.

Landsbankinn spáir nú þegar lækkun lánshæfismats Íslands

niður í ruslflokk takist ekki að tryggja orkuafhendingu.

Álframleiðs á Íslandi með endurnýjanlegri vatnsorku

er gríðarlega umhverfisvæn,

það er bara ekki heil brú í þessu.

Við erum að losa margfalt minna af gróðurhúsalofttegundum.

Þetta snýst ekki um verndun hálendis.

Aðalatriðið er þetta ofbeldi.

Já og lýðræði, þetta snýst um það.

Ég meina: "Til eru lög sem eru æðri manna lögum."

Hvað er það? Guðs lög? -Já, eða sharia lög?

Og á þá ekki bara að hætta allri framleiðslu?

Við eigum öll að skríða aftur ofan í moldarkofana kannski?

Þú svarar ekki í símann? -Nei, ég gleymdi honum heima.

Þarftu ekki að hafa með föt á hana? -Jú.

Hvað stærð notar hún? -Ég veit það ekki.

Hún er 97 sentimetrar og 22 kíló.

Litla skinnið.

Hún myndi ekki botna hérna.

Ertu að djóka? Drífðu þig.

Mamma, mamma, mamma.

Halló?

Heyrðu Sirrý mín, varst þú bara inni í skáp?

Komdu hérna. -Hvað ertu gömul?

Fjögurra ára.

Fjögurra ára.

Rosalega ertu með fínar tær. Má ég sjá?

Hvað skónúmer notar hún? -Svona 25 eða 26.

Þau stækka náttúrulega svo hratt á þessum aldri.

Þau gera það. -Já, svo sannarlega.

Og ég meina, svona almennilegir barnaskór þeir kosta nú sitt.

Sérstaklega núna þegar allt fer að hækka út af þessari Fjallkonu.

Já, guð hvað þetta er sorglegt.

Nei, þetta er náttúrulega bara hræðilegt.

Hvað er svona hræðilegt?

Bara þetta ofbeldi.

Ofbeldi, þetta er ekkert ofbeldi, þetta eru skemmdarverk

Bara skemmdarverk?

Efnahagsleg skemmdarverk.

En þetta eru öfgar og öfgar ala af sér öfgar.

Sá sem bregður sverði mun fyrir sverði falla.

En ég meina, það hefur enginn slasast

nema landið okkar og jörðin.

Þetta er samt auðvitað ekki leiðin

til þess að leysa þessi mál, sko.

Heldur hvað? Sitja í einhverju klaustri og íhuga?

Hverju breytir það?

Það breytir alla vega mér og þar með vonandi öllum heiminum.

Er þetta ekki egóismi,

að halda að það sé nóg að breyta sjálfum sér?

Dropinn holar steininn. -Steininn?

Björgin eru hérna að hrynja yfir okkur

og við höfum ekki tíma til þess að bíða eftir einhverjum dropum.

Ert þú ekki að fara að bjarga einu barni

og þar með vonandi öllum heiminum?

Er það ekki einn lítill dropi eða er það bara hégómi?

Nei, ég er alla vega að gera eitthvað

fyrir einhvern annan en sjálfa mig.

Aðalatriðið er að við megum ekki láta svona terror

umbreyta samfélagi okkar í einhvern frumskóg

þar sem sá frekari ræður.

Fyrirgefðu, en ég vil fá að spyrja forsætisráðherrann

um stefnu og aðgerðir ríkisstjórnarinnar

í loftslagsmálum sem eru jú stóru málin

og virðast vera hvati þessara aðgerða.

Já, já við getum ekki byrjað að ræða þessi náttúruverndarmál

fyrr en við fáum það á hreint hvar við, sem þjóð,

stöndum gagnvart þessu ofbeldi. Það er grundvallaratriðið.

Aðalatriðið er að við fylkjum okkur

á bak við lýðræðishugsjónina.

Nákvæmlega það sama og Al Qaida og Ísis hvetja til,

og gera, en nærtækasta dæmið í okkar heimshluta

er að sjálfsögðu Anders Breivik sem er í þessu samhengi,

norsk fjallkona eða fjallkóngur.

Jú, þessar tæknilegu breytingar gera okkur kleift

að koma algjörlega í veg fyrir straumfall

og um leið stórauka flutningsgetuna.

Það verður því ekki hægt að slá út álver

og halda þannig heilli þjóð í efnahagslegri gíslingu.

Þetta þýðir ekki bara það að samningaviðræður við Kínverja

eru aftur komnar á fullt heldur er einnig stefnt á stækkun

hjá Rio Tinto í Straumsvík.

Nú fer landið aftur að rísa.

Takk fyrir.

Ég þarf svo töluvert fleiri af þessum og sex pottablóm að auki

og 25 kílóa poka af hænsnaskít sem væri gott að fá í skottið,

ef þú vildir vera svo vænn.

Hænsnaskít.

Hér var að berast frétt.

Samkvæmt lögreglunni á Blönduósi var brotist inn í

sprengiefnageysmlu Vegagerðarinnar

í Svínadal í nótt

og þar stolið nokkru magni af sprengiefni.

Almannavarnir hafa lýst yfir hættustigi

vegna mögulegra skemmdarverka

og verið er að setja upp vegatálma og eftirlitsstöðvar

á þjóðvegum landsins.

Eru vegfarendur hvattir til

að tilkynna um grunsamlegar mannaferðir

í neyðarnúmer lögreglu, en gæta þó ítrustu varúðar

því hinir grunuðu gætu verið vopnaðir.

Hæ, hæ.

Hvert er ferðinni heitið? -Það er nú eiginlega leyndó.

Ég ætla að koma frænda mínum á óvart,

svona óvænt blómleg afmælisgjöf.

Nú, hvaða frændi er það? -Sveinbjörn Ásmundsson,

Brúsastöðum í Þingvallasveit.

Já, Sveinbjörn, ég þekki hann. -Nú?

Ert þú skyld honum? -Já.

Geturðu opnað fyrir okkur skottið?

Ókei, ég veit hvað þetta er, ég er sek, ég er sek.

Ég veit það, það þýðir ekki að gefa blóm

og gefa svo ekki næringu með.

Heyrðu, gjörðu svo vel bara.

Er ég sem sagt laus allra mála? -Já.

Frábært, takk elskurnar.

Þegiðu!

Hvað gengur að þér eiginlega?

Hvað ertu að reyna að segja mér?

Út úr tjaldinu.

Þú ert handtekinn. Vertu kyrr.

Takið hann.

Pickup, pickup signal klukkan tvö.

Roger.

Negative.

Bíddu, bíddu þarna.

Er þetta eitthvað? -Negative.

Önnur fokking kind. Þetta er upp um öll fjöll.

Það þarf að fara að stoppa þessa andskotans lausagöngu.

Við höfum ekki mikinn tíma.

Takk.

Þú ert ekki sloppin enn.

Hvernig fannstu mig?

Ég þekki minn afrétt, datt í hug að þú kæmir hérna niður.

Mér er svo kalt.

Hérna, reyndu að troða þér niður á milli þeirra.

Þeir eru hérna fyrir neðan og þegar þeir stoppa okkur

þá verðurðu að vera alveg grafkyrr, ekki múkk.

Kona.

Kona, komdu inn í bíl.

Hvaða ferðalag er á þér?

Ég ætlaði með nokkraheimalninga hér upp á fjall

en var gerður afturreka.

Kona!

Það er nú meiri djöfulsins hamagangurinn

og bröltið í ykkur.

Það er ekki verið að hugsa um blessaðar skepnurnar.

Þessi afréttur hér hefur verið nýttur síðustu þúsund árin

og menn hafa ekki rétt á því

að styggja fé af fjalli bara svona sér til skemmtunar.

Koma svo! Komdu!

Það er nú enginn að skemmta sér hér. -Jæja.

Þið félagarnir ætlið kannski að raka safnið aftur á fjall

þegar ég er búinn að fá þetta allt saman niður í byggð

út af helvítis óspektum í ykkur!

Við skulum ekki tefja þig lengur, Sveinbjörn minn.

En ef þú verður var við eitthvað.

Ég ætti nú ekki annað eftir

en að fara að vakta fyrir ykkur

landið sem þeir tóku af mér eignarnámi.

Já! Svona, burt með þig.

Karlmanni af erlendum uppruna

sem handtekinn var vegna málsins í fyrradag

hefur verið sleppt úr haldi.

Sýnt þykir að hann hafi ekki átt þátt í skemmdarverkinu

sem framið var.

Lögregla leitar enn þeirra sem sprengdu rafmagnsmastrið...

Hey.

Góðan daginn.

Góðan dag.

Er Halla heima? -Já, hún skrapp bara í sturtu.

Já, ókei, ég skil, hérna...

Viltu kannski bara líta inn og hinkra eftir henni?

Nei, nei, nei, alls ekki, viltu ekki bara færa henni þetta,

þetta eru sem sagt föt og skór á stelpuna

og ég hringi bara seinna. Ég er Ása.

Já, systirin.

Sveinbjörn.

Mynd af henni, Niku minni. -Jahá.

Nika? -Já, hún er frá Úkraínu.

Hún er nú ekkert ólík þér og ykkur systrum.

Ha?

Já, hún koma hérna áðan með þennan pakka handa Niku.

Já, þeir eru dugnaðarforkar, Úkraínumenn og konur.

Jæja, þú veist hvar mig er að finna.

Þú ert alltaf velkomin og litla stúlkan.

Já, hún verður nú að fá að hitta frænda sinn.

Já, ja meintan frænda.

Þú ert frændi minn og verður frændi okkar.

Góða ferð.

Takk.

Veist þú eitthvað hvað er í gangi hérna?

Þetta er víst út af skemmdarverkunum,

þeir eru að taka lífsýni. -Ha?

Það er allt logandi á netinu út af þessu.

Ertu að sjá þetta...

Ég trúi þessu ekki...

Heyriði, þið getið bara hætt þessu strákar mínir,

þeir eru búnir að handtaka hana.

Hverja?

Fjallkonuna, þetta er einhver jógakennari í 101.

En þetta er svolítið líkt þér.

Bæinn? -Já.

Það er bara allt að verða vitlaust hérna.

Þessi terroristi sem þeir handtóku,

þetta er víst einhver kolvitlaus

lattelepjandi listakelling.

Lýst er eftir Höllu Benediktsdóttur,

kórstjóra og tónlistarmanni.

Halla er 49 ára gömul,

176 sentimetrar á hæð, grannholda með stutt dökkt hár.

Þeir sem gefið geta upplýsingar um ferðir Höllu...

Hvaðan ertu svo að koma?

Úkraínu.

Nú? Ég vissi ekki að það væri flogið beint þaðan.

Heyrðu, ég held ég þurfi að kasta upp.

Leggstu niður! Leggstu niður!

Komdu. Svona, já, góð stelpa.

Jæja.

Það á að færa hana af gæslunni yfir á almenna.

Hún er komin með gest. -Ókei.

Þú ýtir svo bara á hnappinn hérna,

þá komum við, annars hafið þið klukkutíma.

Lokaðu væni.

Takk fyrir gallann.

Er þetta ekki bara viðeigandi? -Jú, ætli það ekki.

Ég hefði átt að segja þér...

Nei. Þá væri ég meðsek.

Auk þess hef ég aldrei getað þagað yfir leyndarmáli.

Nú skil ég hvers vegna þú baðst mig um

að vera til staðar vegna barnsins.

Ég vil ekki tala um það.

Nú verður þú hér og gerir þetta lokaða hús, þetta fangelsi

að þínum griðastað, þínu klaustri, þínu musteri.

Já, ætli það sé ekki best að líta þannig á það.

Þú verður hér, en ég, Ása systir þín,

ég er að fara til Úkraínu.

Ha?

Ég talaði við ættleiðingarskrifstofuna,

Ég var næst í röðinni, alveg eins og þú sagðir.

Ég er búin að ganga frá öllu,

ég er búin að útvega nýja pappíra

og þeir eru í töskunni minni úti í bíl.

Ég er tilbúin til að fara til Úkraínu

til að verða móðir Niku.

En hvað með klaustrið og Gúrúinn.

Ég er búin að ákveða þetta.

Þitt ferðalag er núna mitt ferðalag.

Og ég fer héðan beint út á flugvöll.

En...

En þú, Halla, þú ætlar að dvelja hér í þínu klaustri,

þínu ashrami og stunda hér þína íhugun.

-Já, en... Halla.

Þú verður að treysta mér.

Við höfum örfáar sekúndur

áður en að ljósavélarnar fara aftur í gang.

Hvað er í gangi?

Frændi okkar var að slá út öllu rafmagni á Suðurlandi.

Frændi?

Meintur frændi.

Komdu með Niku litlu heim

svo hjálpumst við að þegar ég útskrifast úr klaustrinu mínu.

Við verðum að enda þessa heimsókn af öryggisástæðum.

Snúa.

Namaste.

Og hvað á það að þýða?

Ég heilsa þínu innra, ekki því ytra,

ekki því sem þú virðist vera,

heldur þinni innri veru sem er heilög og góð.

Namaste.

Can't find what you're looking for?
Get subtitles in any language from opensubtitles.com, and translate them here.